Hvað er Bitcoin veski?

Ef þú kaupir Bitcoin og vilt taka það út af Myntkaup þá þarftu að byrja á því að verða þér út um Bitcoin veski.

Bitcoin veski eru öpp sem að innihalda Bitcoin. Í hverju veski eru að finna Bitcoin addressur og svokallaða leynilykla (nokkurs konar PIN númer) þeirra.

Bitcoin veski eru notuð til þess að senda og taka á móti Bitcoin. Þau sjá um að búa til Bitcoin addressur fyrir þig, sem og að geyma leynilyklana. Þau sjá einnig um aðra hluti eins og að athuga hvort að addressur séu gildar,reikna út færslugjöldog einnig heldur það utan um stöðu og færslusögu þína.

Bitcoin veski eru eins og þinn eigin Bitcoin heimabanki. Það eru til mörg mismunandi veski og mikilvægt er að velja þau traustustu og öruggustu. Hér má finna góðar leiðbeiningar um veski ef þú ert óviss um það hvaða veski þú ættir að nota.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.