Ethereum staðfestingar (e. confirmations) og hvernig þær virka

Þegar þú leggur Ethereum inn á Myntkaup þá þarftu að bíða eftir 35 staðfestingum áður en upphæðin birtist á reikningnum þínum. Þegar Ethereum færsla er send þá er hún fyrst um sinn óstaðfest. Grafarar safna óstaðfestum færslum saman og bæta þeim við í blokkir. Þegar færslu hefur verið bætt við í blokk þá er hún sögð staðfest. Fyrst um sinn hefur færslan eina staðfestingu, en staðfestingunum fjölgar þegar fleiri blokkum er bætt við í kerfið. Á meðan færsla hefur fáar staðfestingar er möguleiki á því að hún verði bakfærð, en eftir því sem staðfestingunum fjölgar þeim mun ólíklegra verður það og eftir 35 staðfestingar er það almennt talið ómögulegt. Þess vegna leggjum við Ethereum inn á reikninginn þinn eftir 35 staðfestingar.

Nýjum blokkum er að meðaltali bætt við í kerfið á 15 sekúndna fresti, þ.a. 35 staðfestingar taka að meðaltali um tæplega 9 mínútur. Eftir að þú leggur Ethereum inn á Myntkaup geturðu því átt von á því að bíða í 9 mínútur áður en upphæðin birtist á reikningnum þínum. Hins vegar geta færslur tafist ef mikið álag er á Ethereum kerfinu og því vert að gera sér grein fyrir því að í einhverjum tilfellum gæti orðið lengri bið eftir færslunum.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.