Gjaldskrá Myntkaupa
Hér eru öll gjöld sem Myntkaup tekur. Engin önnur eða falin gjöld eru tekin. Dæmi um heildarkostnað við kaup og sölu finnur þú á síðunni Kostnaður.
Kaup og sala
| Viðskipti | Gjald |
|---|---|
| Kaup og sala á öllum rafmyntum | 1,99% gengismunur |
Gengismunurinn er innifalinn í verðtilboðinu sem þú sérð áður en þú staðfestir viðskiptin. Þegar þú kaupir er verðið 1,99% yfir markaðsverði og þegar þú selur 1,99% undir því. Engin önnur þóknun er tekin af viðskiptunum.
Innborganir
| Innborgunarleið | Gjald | Lágmark |
|---|---|---|
| Bankamillifærsla í krónum | Frítt | Ekkert |
| Blikk | 0,3% | 500 kr. |
| Netgíró | 2% | 500 kr. |
| Rafmyntir | Frítt | Ekkert |
Krónum sem berast með bankamillifærslu er sjálfkrafa breytt í USDC á almennu sölugengi Arion banka á Bandaríkjadal, án álags. Um helgar og á frídögum er notað gengi síðasta bankadags.
Bankaúttektir
| Úttekt | Gjald | Lágmark |
|---|---|---|
| Bankaúttekt í krónum | 7 USDC | 15 USDC |
USDC er umreiknað í krónur á almennu kaupgengi Arion banka á Bandaríkjadal, án álags. Um helgar og á frídögum er notað gengi síðasta bankadags.
Rafmyntaúttektir
Þegar þú tekur rafmynt út á eigið veski eða annan vettvang er tekið fast úttektargjald sem dekkar netgjald (e. network fee) viðkomandi bálkakeðju.
| Rafmynt | Úttektargjald | Lágmarksúttekt |
|---|---|---|
| Bitcoin (BTC) | 0,0003 BTC | 0,0006 BTC |
| Ethereum (ETH) | 0,005 ETH | 0,01 ETH |
| Solana (SOL) | 0,05 SOL | 0,1 SOL |
| Avalanche (AVAX) | 0,2 AVAX | 0,4 AVAX |
| Cardano (ADA) | 12 ADA | 24 ADA |
| XRP | 5 XRP | 30 XRP |
| Polkadot (DOT) | 1 DOT | 2 DOT |
| Sui (SUI) | 1 SUI | 2 SUI |
| Shiba Inu (SHIB) | 500.000 SHIB | 1.000.000 SHIB |
| Dogecoin (DOGE) | 20 DOGE | 80 DOGE |
| Chainlink (LINK) | 0,4 LINK | 1 LINK |
| Hedera (HBAR) | 20 HBAR | 80 HBAR |
USDC er grunnmynt reikningsins og ekki er hægt að leggja það inn eða taka það út á bálkakeðju. Þú getur hins vegar tekið USDC út sem krónur með bankaúttekt.
Afsláttur fyrir stærri viðskipti
Ef þú hyggst stunda viðskipti fyrir háar fjárhæðir geturðu haft samband við okkur á myntkaup@myntkaup.is og við getum oft boðið betri kjör miðað við vænta viðskiptaveltu.
Síðast uppfært: 18. október 2026