Hvernig kaupi ég Bitcoin á Myntkaup?
Þegar þú hefur lagt pening inn á Myntkaup reikninginn þinn þá getur þú keypt Bitcoin.
Þú byrjar á því að smella á Kaupa Bitcoin takkann:

Þegar þú smellir á takkann þá birtist gluggi þar sem þú getur slegið inn upphæðina, í evrum talið, sem þig langar að kaupa fyrir.

Þegar þú hefur valið upphæðina þá hefur þú 20 sekúndur til þess að staðfesta verðtilboðið sem þú fékkst.

Þegar þú smellir á Staðfesta takkann þá kaupir þú Bitcoin fyrir upphæðina sem þú valdir.
