Ethereum staðfestingar (e. confirmations) og hvernig þær virka
Þegar þú leggur Ethereum inn á Myntkaup þarftu að bíða eftir 35 staðfestingum áður en upphæðin birtist á reikningnum þínum.
Þegar Ethereum færsla er send er hún fyrst um sinn óstaðfest. Svokallaðir staðfestingaraðilar (e. validators) safna færslum saman í blokkir. Þegar færslu hefur verið bætt við í blokk er hún sögð staðfest og hefur þá eina staðfestingu. Staðfestingunum fjölgar eftir því sem fleiri blokkum er bætt við. Eftir því sem staðfestingunum fjölgar verður ólíklegra að færslan verði bakfærð og eftir 35 staðfestingar er það talið ómögulegt. Þess vegna leggjum við Ethereum inn á reikninginn þinn eftir 35 staðfestingar.
Ný blokk bætist við Ethereum-netið á um það bil 12 sekúndna fresti, svo 35 staðfestingar taka að jafnaði um 7 mínútur. Ef mikið álag er á Ethereum-netinu geta færslur tafist og þá getur biðin orðið lengri.
Sama gildir um Chainlink (LINK) og Shiba Inu (SHIB), sem eru tókar á Ethereum-netinu.
Síðast uppfært: 18. október 2026