Uppfærsla vegna MiCA og USDC
Við erum stolt að tilkynna að Myntkaup hefur hlotið leyfi sem Þjónustuveitandi Sýndareigna (e. Crypto-Asset Service Provider, CASP). Það þýðir að Myntkaup er nú leyfisskyldur þjónustuveitandi sýndareigna og lýtur eftirliti Seðlabanka Íslands.
Við erum að uppfæra appið okkar og reglur og skilmála sem gilda um þjónustu félagsins til að aðlaga þjónustuna okkar að nýjum reglum Evrópusambandsins um rafmyntir.
Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér uppfærða skilmála og stefnur sem félagið hefur sett sér með því að smella hér: Skoða nýja skilmála & Stefnur
Hvað er MiCA?
MiCA stendur fyrir Markets in Crypto-Assets. Þetta er nýtt regluverk á Evrópska efnahagssvæðinu sem setur skýrari reglur um þjónustu tengda rafmyntum. Reglugerðin var innleidd í íslensk lög 1. janúar 2026 með lögum nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir.
Markmiðið með MiCA er meðal annars að auka gagnsæi, bæta neytendavernd og samræma reglur milli landa.
Aðeins leyfisskyldir aðilar mega starfa eftir 1. júlí 2026.
Mikilvægur hluti af MiCA er að frá og með 1. júlí 2026 er óheimilt að veita rafmyntaþjónustu á Evrópska efnahagssvæðinu án tilskilins leyfis. Þjónustuveitendur sem ekki hafa hlotið slíkt leyfi mega ekki halda áfram starfsemi eftir þann tíma.
Við hvetjum alla sem eiga rafmyntir hjá öðrum aðilum til að ganga úr skugga um að þjónustuveitandinn þeirra sé með tilskilið leyfi.
Samhliða því hefur Myntkaup einnig aðlagað rekstur og þjónustu sína að lögum nr. 78/2025 um stafrænan viðnámsþrótt á fjármálamarkaði (DORA).
Hvað breytist í Myntkaup appinu?
Við erum að færa grunnmynt í appinu úr USD yfir í USDC. Þetta þýðir að inneign sem áður var birt sem USD verður framvegis birt sem USDC.
Þetta er gert til að aðlaga þjónustuna betur að MiCA og því lagaumhverfi sem nú tekur við.
USDC er rafmynt sem er hönnuð til að fylgja virði Bandaríkjadals. Slíkar rafmyntir eru oft kallaðar stöðugleikamyntir.
Einfalda skýringin er þessi: 1 USDC á að samsvara 1 USD. USDC er því stafræn leið til að eiga og flytja virði sem fylgir Bandaríkjadal, en hún er vistuð á bálkakeðju líkt og aðrar rafmyntir.
Hvað gerist með nýjar innborganir?
Nýjar innborganir í íslenskum krónum verða framvegis umbreyttar yfir í USDC.
Hingað til hafa innborganir í íslenskum krónum verið umbreyttar yfir í USD. Eftir breytinguna verða þær umbreyttar yfir í USDC í staðinn.
Við notum almennt gengi Bandaríkjadollars hjá Arion banka við gengisútreikning á innborguninni.
Hvað gerist með USD inneign sem er þegar á reikningnum?
Viðskiptavinir sem eiga USD inneign hjá Myntkaup fá möguleika á að breyta þeirri inneign yfir í USDC á genginu 1:1.
Það þýðir að:
- 1 USD verður 1 USDC
- engin gjöld eru tekin fyrir breytinguna
- inneignin helst í sama virði gagnvart Bandaríkjadal
Þarf ég að gera eitthvað?
Ef þú vilt ekki breyta USD inneigninni þinni yfir í USDC getur þú óskað eftir bankaúttekt.
Af hverju er verið að gera þetta?
Við viljum að þjónusta Myntkaupa sé skýr, örugg og í samræmi við þær reglur sem gilda um rafmyntaþjónustu.
Breytingin úr USD yfir í USDC er hluti af þeirri vinnu. Hún á að aðlaga þjónustu félagsins betur að breyttu lagaumhverfi.
Ef þú hefur spurningar um breytinguna getur þú haft samband við okkur og við aðstoðum þig.