Starfsleyfi og varsla eigna
Er Myntkaup með starfsleyfi?
Já. Myntkaup ehf. fékk starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (CASP) samkvæmt MiCA frá Seðlabanka Íslands 25. júní 2026 og er undir eftirliti Seðlabankans. MiCA var innleitt í íslensk lög með lögum nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir.
Leyfið nær til:
- vörslu og umsýslu sýndareigna fyrir hönd viðskiptavina,
- skipta á sýndareignum fyrir fjármuni,
- skipta á sýndareignum fyrir aðrar sýndareignir,
- millifærsluþjónustu fyrir sýndareignir fyrir hönd viðskiptavina.
Í október 2026 er Myntkaup eini aðilinn á skrá Seðlabankans yfir þjónustuveitendur sýndareigna. Sjá einnig tilkynningu Seðlabankans.
Hvernig eru eignirnar mínar varðveittar?
- Multi-party computation (MPC). Rafmyntir eru varðveittar með MPC-tækni frá Fireblocks. „Lyklinum“ er skipt í marga hluta sem geymdir eru í aðskildum kerfum, svo enginn einn lykill stjórnar eignunum.
- Eftirlitsskyldir vörsluaðilar. Verulegur hluti eigna viðskiptavina er í vörslu Coinbase í Lúxemborg og Kraken á Írlandi, sem báðir eru með starfsleyfi sem þjónustuveitendur sýndareigna innan ESB.
- Aðskilnaður eigna. Eignir viðskiptavina eru lagalega aðskildar frá eignum Myntkaupa og eru varðar fyrir kröfum lánadrottna ef félagið yrði gjaldþrota.
- Engin útlán. Við lánum aldrei eignir viðskiptavina né notum þær í eigin fjárfestingar.
- Örugg úttekt. Allar úttektir eru staðfestar með PIN-númeri í appinu og í tölvupósti.
Nánar á síðunni Starfsleyfi og öryggi.
Síðast uppfært: 18. október 2026