Andlát reikningseiganda (dánarbú)
Ef reikningseigandi fellur frá geta erfingjar fengið eignirnar afhentar.
Svona fer ferlið fram
- Hafið samband í tölvupósti á myntkaup@myntkaup.is eða í gegnum hafðu samband-formið.
- Sá sem hefur umboð til að ganga frá dánarbúinu leggur fram skjal frá sýslumanni sem sýnir leyfi til einkaskipta og veitir umboð til að ganga frá dánarbúinu.
- Viðkomandi velur hvort eignirnar verði seldar og greiddar út í krónum inn á bankareikning dánarbúsins eða millifærðar.
Afgreiðsla tekur yfirleitt nokkra daga eftir að gögnin hafa borist.
Við vitum að þetta er erfiður tími og reynum að gera ferlið eins einfalt og hægt er. Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
Síðast uppfært: 18. október 2026