Fyrirtækjareikningar
Fyrirtæki geta stofnað reikning hjá Myntkaupum til að kaupa, selja og geyma rafmyntir.
Svona stofnar þú fyrirtækjareikning
- Sendu okkur póst á myntkaup@myntkaup.is og láttu vita að þú viljir stofna fyrirtækjareikning.
- Áreiðanleikakönnun. Við könnum hverjir eru raunverulegir eigendur fyrirtækisins og framkvæmum áreiðanleikakönnun eins og lög gera ráð fyrir.
- Nokkrar spurningar. Við biðjum þig að svara nokkrum spurningum um starfsemina og fyrirhuguð viðskipti.
- Reikningurinn er stofnaður og þú getur hafið viðskipti.
Yfirlit fyrir bókhald
Fyrirtæki geta fengið öll þau yfirlit sem endurskoðandi eða bókari þarf, svo sem færslusögu og eignastöðu í lok árs.
Nánar á síðunni Fyrirtækjaþjónusta.
Síðast uppfært: 18. október 2026