Kvartanir
Ef eitthvað í þjónustu Myntkaupa er ekki eins og það á að vera getur þú lagt fram kvörtun. Það er þér að kostnaðarlausu og við tökum allar kvartanir alvarlega.
Hvernig legg ég fram kvörtun?
- Sendu póst á myntkaup@myntkaup.is, eða
- notaðu þetta form og veldu Kvörtun.
Láttu fylgja nafn þitt, hvernig best er að ná í þig, lýsingu á málinu og þau gögn sem skipta máli.
Hvað gerist svo?
- Innan 5 virkra daga færðu skriflega staðfestingu á að kvörtunin hafi borist, ásamt tilvísunarnúmeri.
- Innan 30 daga frá staðfestingu færðu formlegt svar. Ef málið þarf lengri tíma látum við þig vita og hve langan tíma það mun taka.
Ef niðurstaðan er ekki fullnægjandi
- Þú getur óskað eftir innri endurskoðun málsins, sem starfsmaður sem kom ekki að upphaflegri meðferð þess annast.
- Þú getur hvenær sem er leitað til Seðlabanka Íslands, sem hefur eftirlit með Myntkaupum.
- Þú getur einnig leitað til dómstóla.
Reglur Myntkaupa um meðferð kvartana eru birtar á síðunni Skilmálar og stefnur.
Síðast uppfært: 18. október 2026