Innborgun með Bitcoin

Það er einfalt mál að leggja Bitcoin inn á Myntkaup reikninginn þinn. Þessi grein mun sýna þér skref fyrir skref hvernig það er gert.

Til þess að leggja Bitcoin inn á Myntkaup reikninginn þinn byrjar þú á að því að smella á Innborgunar-takkann:

Þegar þú smellir á takkann þá birtist gluggi þar sem þú getur valið innborgunarleið:

Veldu Leggja inn Bitcoin og smelltu á Áfram:

Athugaðu að leggja aðeins Bitcoin (BTC) inn á Bitcoin addressuna sem þú færð úthlutaða. Þegar þú hefur lesið skilaboðin þá getur þú smellt á Ég skil til þess að halda áfram:

Þú færð Bitcoin addressu úthlutaða þegar þú skráir þig á Myntkaup.

Þú getur lagt Bitcoin inn á þessa addressu hvenær sem er og hvaðan sem er. Þegar þú leggur inn á Bitcoin addressuna þína hjá Myntkaupum þá munt þú geta stundað viðskipti með upphæðina sem þú leggur inn eftir þrjár staðfestingar á Bitcoin bálkakeðjunni.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.