Hvernig innleysi ég kóða á Myntkaup?
Til þess að sækja inneign með kóða sem þú hefur fengið frá Myntkaupum þá byrjarðu á því að skrá þig á Myntkaup.
Þú getur nýskráð þig með því að smella hér: app.myntkaup.is/nyskra.
Þegar þú hefur lokið nýskráningunni þá smellir þú á myndina uppi í hægra horninu og færð þá niður valmynd (sjá skjáskot).
Þú smellir á hlekkinn sem á stendur Innleysa kóða og færð þá upp eftirfarandi skjá:
Hér getur þú stimplað inn kóðann sem þú fékkst sendan og að því loknu þá smelliru á takkann sem á stendur "Sækja inneign".
Ef kóðinn er gildur þá hefur þú fengið inneignina afhenta!