Úttekt með Ethereum

Það er einfalt að taka Ethereum út af Myntkaup reikningnum þínum. Þessi grein mun sýna þér skref fyrir skref hvernig það er gert.

Athugaðu að áður en þú getur tekið út Ethereum þá þarftu að verða þér úti um Ethereum addressu (sjá: Hvað er Ethereum addressa?).

Til þess að taka út Ethereum þá byrjar þú á því að smella á Úttekt takkann efst í vinstra horninu:

Þegar þú smellir á takkann birtist dálkur vinstra megin þar sem þú getur valið um Ethereum sem úttektarleið:

Í dálknum hægra megin slærðu síðan inn Ethereum addressu og upphæðina sem þú vilt taka út. Að þessu loknu smellir þú síðan á Næsta skref takkann:

Þá birtist ný síða þar sem þú getur yfirfarið allar upplýsingar og því næst staðfest úttektarbeiðnina: Athugaðu að fara vel yfir það hvort Ethereum addressan sé rétt slegin inn. Vegna þess hversu flóknar Ethereum addressur eru þá er mælst gegn því að reyna að muna þær og/eða skrifa þær inn handvirkt þegar framkvæma á færslu. Öruggast er að afrita addressuna í heild og staðfesta að fyrstu og öftustu fjórir stafirnir séu réttir.

Þegar þú smellir á Staðfesta takkann færðu sendan tölvupóst þar sem þú ert beðinn um að staðfesta úttektarbeiðnina. Úttektarbeiðnir í Ethereum eru afgreiddar daglega og munum við láta þig vita þegar beiðnin hefur verið afgreidd.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.