Hvernig legg ég inn rafmynt?
Þú getur lagt Bitcoin, Ethereum og allar aðrar rafmyntir sem við bjóðum upp á, nema USDC, inn á Myntkaup reikninginn þinn frá eigin veski eða öðrum vettvangi. Innborganir með rafmyntum eru gjaldfrjálsar.
Svona leggur þú inn
- Smelltu á Innborgun í appinu eða á vefnum og veldu rafmyntina.
- Þá sérðu addressuna þína hjá Myntkaupum fyrir þá rafmynt. Þú getur lagt inn á hana hvenær sem er.
- Sendu rafmyntina á addressuna úr veskinu þínu eða af hinum vettvanginum.
Sendu aðeins á réttu neti
Hver rafmynt er lögð inn á sínu eigin neti: Bitcoin á Bitcoin-netinu, Solana á Solana-netinu og svo framvegis. Chainlink (LINK) og Shiba Inu (SHIB) eru lögð inn á Ethereum-netinu. Ef þú sendir á rangt net eða sendir aðra rafmynt en þá sem addressan er fyrir geta fjármunirnir glatast.
Hvenær kemur innborgunin inn?
- Bitcoin: eftir 3 staðfestingar, yfirleitt um hálftíma (sjá Bitcoin staðfestingar).
- Ethereum, Chainlink og Shiba Inu: eftir 35 staðfestingar, yfirleitt um 7 mínútur (sjá Ethereum staðfestingar).
- Aðrar rafmyntir: yfirleitt innan nokkurra mínútna.
Innborganir með rafmyntum eru afgreiddar sjálfkrafa allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Ef þú átt ekki veski, sjá Hvað er Bitcoin veski? og Hvað er Ethereum veski?
Síðast uppfært: 18. október 2026