Innborgun með bankamillifærslu

Til þess að leggja inn á Myntkaup reikninginn þinn þá millifærirðu upphæðina inn á eftirfarandi bankareikning:

Nafn: Myntkaup ehf.

Kennitala: 520717-0800

Reikningsnúmer: 0301-26-027012


Þegar millifærslan hefur borist inn á reikning Myntkaupa verður upphæðinni umbreytt yfir í USDC á almennu gengi Bandaríkjadollars í Arion banka. 

Eftir að innborgun er afgreidd getur þú keypt bitcoin eða aðrar rafmyntir!

Við munum afgreiða innborgunina þína eins fljótt og auðið er, í langflestum tilfellum eru innborganir afgreiddar á innan við tuttugu mínútum.

Við afgreiðum innborganir alla daga ársins, þar með talið um helgar og á hátíðardögum.

Það eru nokkur atriði sem hafa ber í huga með bankamillifærslur inn á reikning þinn hjá Myntkaupum.

  1. Þú verður að millifæra af bankareikning í þínu nafni. Ef þú leggur inn á reikning Myntkaupa af reikning sem er ekki í þínu nafni þá verður upphæðin send til baka.
  2. Þú færð greitt inn á Myntkaup reikninginn þinn í USDC, þar sem öll viðskipti með sýndareignir sem Myntkaup býður upp á eru í þeirri grunnmynt.
  3. Þegar millifærslan hefur borist inn á reikning Myntkaupa verður upphæðinni umbreytt yfir í USDC á almennu gengi Bandaríkjadollars hjá Arion banka. Innborganir sem berast utan opnunartíma gjaldeyrismarkaða eru afgreiddar á almennu dagslokagengi Arion banka síðasta virka dag.
  4. Athugið að gjaldeyrismarkaðir eru aðeins opnir virka daga milli 09:30 - 16:00.
  5. Myntkaup rukkar engin gjöld fyrir bankainnborganir.
Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.