Innborgun með Blikk og Netgíró

Með Blikk eða Netgíró kemur innborgunin inn á reikninginn þinn strax, allan sólarhringinn. Það hentar ef þú vilt geta keypt rafmyntir án þess að bíða.

Svona leggur þú inn

  1. Smelltu á Innborgun í appinu eða á vefnum.
  2. Veldu Blikk eða Netgíró og sláðu inn upphæðina í krónum.
  3. Fylgdu leiðbeiningunum til að ljúka greiðslunni.

Upphæðin kemur strax inn á reikninginn þinn sem USDC og þú getur keypt rafmyntir um leið.

Gjöld og lágmörk

Leið Gjald Lágmark
Blikk 0,3% 500 kr.
Netgíró 2% 500 kr.

Ef þú leggur inn hærri fjárhæðir og getur beðið í nokkrar mínútur er bankamillifærsla gjaldfrjáls.

Síðast uppfært: 18. október 2026

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.