Hvað er Ethereum addressa?
Þegar þú leggur Ethereum inn á Myntkaup reikninginn þinn eða tekur Ethereum út af honum þá sendirðu það á sérstaka Ethereum addressu, sem er ekki ósvipuð bankareikningi.
Ethereum addressa eru fjörutíu stafa runa af tölustöfum og bókstöfum, ásamt tveggja stafa forskeytinu 0x. Hér er dæmi um Ethereum addressu: 0x71C7656EC7ab88b098defB751B7401B5f6d8976F
Ethereum addressur eru yfirleitt búnar til af svokölluðum veskjum (sjá: Hvað er Ethereum veski?), þannig ef þú vilt taka Ethereum út af Myntkaup þá þarftu að byrja á því að verða þér úti um veski.
Þegar þú ert kominn með veski þá finnur þú Ethereum addressuna þína þar. Þá geturðu tekið Ethereum út af Myntkaup og lagt inn á þína addressu (sjá: Úttekt með Ethereum).