Hvernig tek ég rafmynt út á eigið veski?

Þú getur tekið Bitcoin, Ethereum og allar aðrar rafmyntir sem við bjóðum upp á, nema USDC, út á eigið veski, kalt veski (t.d. Ledger eða Trezor) eða annan vettvang.

Svona tekur þú út

  1. Smelltu á Úttekt í appinu eða á vefnum og veldu rafmyntina.
  2. Sláðu inn addressuna sem þú vilt senda á og upphæðina. Afritaðu addressuna í heild og athugaðu að fyrstu og síðustu fjórir stafirnir séu réttir. Færslur á bálkakeðjum er ekki hægt að bakfæra.
  3. Staðfestu úttektina með PIN-númerinu þínu í appinu og í tölvupósti.

Af öryggisástæðum samþykkir starfsmaður allar úttektir milli kl. 09:00 og 23:59. Úttektir sem beðið er um utan þess tíma eru afgreiddar þegar þjónustutíminn hefst aftur.

Net, gjöld og lágmörk

Sendu aðeins á það net sem tilgreint er hér að neðan. Ef sent er á rangt net geta fjármunirnir glatast.

Rafmynt Net Úttektargjald Lágmarksúttekt
Bitcoin (BTC) Bitcoin 0,0003 BTC 0,0006 BTC
Ethereum (ETH) Ethereum 0,005 ETH 0,01 ETH
Solana (SOL) Solana 0,05 SOL 0,1 SOL
Avalanche (AVAX) Avalanche 0,2 AVAX 0,4 AVAX
Cardano (ADA) Cardano 12 ADA 24 ADA
XRP XRP Ledger 5 XRP 30 XRP
Polkadot (DOT) Polkadot 1 DOT 2 DOT
Sui (SUI) Sui 1 SUI 2 SUI
Shiba Inu (SHIB) Ethereum (ERC-20) 500.000 SHIB 1.000.000 SHIB
Dogecoin (DOGE) Dogecoin 20 DOGE 80 DOGE
Chainlink (LINK) Ethereum (ERC-20) 0,4 LINK 1 LINK
Hedera (HBAR) Hedera 20 HBAR 80 HBAR

USDC er grunnmynt reikningsins og ekki er hægt að taka það út á bálkakeðju. Þú getur tekið USDC út í krónum með bankaúttekt.

Ef þig vantar veski eða addressu, sjá Hvað er Bitcoin veski?, Hvað er Bitcoin addressa? og Hvað er Ethereum addressa?

Öll gjöld eru í gjaldskrá Myntkaupa.

Síðast uppfært: 18. október 2026

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.