Ég týndi símanum eða kemst ekki inn

Þú tapar ekki eignunum þínum þótt þú týnir símanum eða kemst ekki inn.

Þú skráir þig inn hjá Myntkaupum með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappinu. Eignirnar þínar eru tengdar kennitölunni þinni, ekki símanum.

Hvað geri ég?

  1. Fáðu þér nýjan síma eða nýtt SIM-kort ef þarf.
  2. Settu rafrænu skilríkin eða Auðkennisappið upp aftur hjá Auðkenni.
  3. Skráðu þig inn hjá Myntkaupum eins og áður.

Þú geymir enga einkalykla hjá Myntkaupum, svo þú getur ekki týnt lykli að eignunum. Eignirnar eru varðveittar af Myntkaupum, sjá Starfsleyfi og varsla eigna.

Ef þú þarft aðstoð geturðu sent póst á myntkaup@myntkaup.is.

Síðast uppfært: 18. október 2026

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.