Hvað er USDC og af hverju er það grunnmynt reikningsins?

USDC er rafmynt sem er hönnuð til að fylgja virði Bandaríkjadals: 1 USDC á að samsvara 1 USD. Slíkar rafmyntir eru kallaðar stöðugleikamyntir.

Hvernig er USDC notað á Myntkaupum?

Öll viðskipti á Myntkaupum fara fram í USDC:

  1. Þegar þú leggur inn krónur er þeim sjálfkrafa breytt í USDC á almennu sölugengi Arion banka á Bandaríkjadal, án álags.
  2. Þú kaupir rafmyntir fyrir USDC.
  3. Þegar þú selur rafmyntir færðu USDC.
  4. Þegar þú tekur út í krónum er USDC breytt í krónur á almennu kaupgengi Arion banka, án álags, og tekið 7 USDC gjald.

Um helgar og á frídögum er notað gengi síðasta bankadags.

Af hverju USDC?

Myntkaup skipti úr Bandaríkjadal (USD) yfir í USDC sem grunnmynt til að laga þjónustuna að MiCA, nýjum reglum Evrópusambandsins um sýndareignir. Sjá Uppfærsla vegna MiCA og USDC.

Get ég tekið USDC út á eigið veski?

Ekki eins og er. Til að mega flytja USDC á bálkakeðju þarf sérstakt leyfi sem greiðslustofnun eða rafeyrisfyrirtæki. Þú getur hins vegar tekið USDC út í krónum með bankaúttekt.

Síðast uppfært: 18. október 2026

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.