Hvernig kaupi ég rafmyntir?

Á Myntkaupum kaupir þú og selur rafmyntir með USDC, sem er grunnmynt reikningsins. Sömu skref gilda fyrir allar rafmyntir sem við bjóðum upp á, í appinu og á vefnum.

Áður en þú kaupir

Til að kaupa þarftu að eiga USDC á reikningnum. Þú færð USDC með því að:

Að kaupa

  1. Smelltu á Kaupa í appinu eða á vefnum.
  2. Veldu rafmyntina sem þú vilt kaupa.
  3. Sláðu inn upphæðina í USDC sem þú vilt kaupa fyrir.
  4. Þú færð verðtilboð sem gildir í 20 sekúndur.
  5. Smelltu á Staðfesta. Rafmyntin birtist strax á reikningnum þínum.

Að selja

  1. Smelltu á Selja í appinu eða á vefnum.
  2. Veldu rafmyntina sem þú vilt selja og sláðu inn upphæðina.
  3. Þú færð verðtilboð sem gildir í 20 sekúndur.
  4. Smelltu á Staðfesta. USDC birtist strax á reikningnum þínum.

Þegar þú hefur selt getur þú geymt USDC, keypt aftur eða tekið út í krónum inn á bankareikninginn þinn.

Hvað kostar þetta?

Fyrir kaup og sölu er tekinn 1,99% gengismunur. Hann er innifalinn í verðtilboðinu sem þú sérð áður en þú staðfestir og engin önnur þóknun er tekin. Öll gjöld eru í gjaldskrá Myntkaupa og dæmi um heildarkostnað er á síðunni Kostnaður.

Hvaða rafmyntir get ég keypt?

Bitcoin (BTC), Ethereum (ETH), Solana (SOL), Avalanche (AVAX), Cardano (ADA), XRP, Polkadot (DOT), Sui (SUI), Shiba Inu (SHIB), Dogecoin (DOGE), Chainlink (LINK) og Hedera (HBAR). Nánar í greininni Hvaða rafmyntir eru í boði?

Reglubundin (sjálfvirk) kaup eru ekki í boði eins og er en eru á stefnuskránni.

Síðast uppfært: 18. október 2026

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir endurgjöfina Upp kom villa. Vinsamlegast reyndu aftur síðar.